Á mánudegi til fimmtudags ganga nemendur Tjarnarhringinn – og frjálst á föstudögum. Þá er hressandi að standa upp frá verkefnum um kl. 11, fá sér ferskt loft, hreyfingu, og spjalla saman. Við gerðum skoðanakönnun meðal nemenda síðast liðið vor sem staðfesti að langflestir eru jákvæðir gagnvart þessari daglegu hreyfingu. Áfram gakk, Tjarnókrakkar!
